English

AkureyrarAkademían

akureyrarakademían, akureyrarakademía, akademía, academy, fræðasetur, fræðifólk, fræðimenn, akademía, Akureyri, Eyjafjörður, Norðurland, vinnuaðstaða

Fréttir

Birtingamyndir ofbeldis

Jafnréttisstofa, Rannsóknamiðstöð gegn ofbeldi og Háskólinn á Akureyri bjóða upp á ráðstefnu um birtingamyndir ofbeldis-afleiðingar og úrræði í HA föstudaginn 11. maí nk. Dagskrá ráðstefnunnar er metnaðarfull en leitast var við að fá framsögufólk og sérfræðinga af ólíkum sviðum samfélagsins til að fjalla um aðkomu þeirra, rannsóknir og helstu þætti sem skoða þarf til að auka þekkingu og úrræði í þessum málaflokki.

Sjá nánar á http://www.unak.is/radstefnur.



Guðjón Samúelsson og Akureyri

Dagskrá Vorþings AkureyrarAkademíunnar verður endurtekin næsta fimmtudag kl. 16:15 í sal Brekkuskóla. Það er Fasteignir Akureyrar sem stendur fyrir dagskránni að þessu sinni og er yfirskriftin: ,,Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins og áhrif hans á bæjarmynd og skipulag Akureyrar."
Lesa meira

Matur, fæði, næring?


Fimmtudaginn 22. mars kl. 17:00 heldur Regina B. Þorsteinsson, hjúkrunarfræðingur (M.Sc.) og meistaranemi í næringarfræði við Roehampton háskólann í Bretlandi, erindi sem nefnist ,,Matur, fæði, næring?". Erindið er hluti af fimmtudagsfyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar og það síðasta á þessum vetri. Það eru allir velkomnir á efri hæð gamla Húsmæðraskólans til að hlýða á erindið og taka þátt í umræðum. Aðgangur ókeypis. Heitt á könnunni.
Lesa meira

Varnarsigrar í fjármálum AkureyrarAkademíunnar


Gjaldkeri stjórnar Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, Sólveig Hulsdunk Georgsdóttir, flutti skýrslu gjaldkera á aðalfundi félagsins þann 15. mars sl. Í máli hennar kom fram að rekstur félagsins á árinu 2011 var mjög erfiður, en með aðhaldi tókst að halda félaginu á floti.
Lesa meira

Skýrsla formanns á aðalfundi 15. mars 2012


Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi er í kvöld, fimmtudagskvöldið 15. mars 2012 kl. 20:00. Skýrsla formanns, Péturs Björgvins Þorsteinssonar, er nú aðgengileg hér á vef félagsins sem pdf-skjal, félagsmönnum og öðrum til upplýsingar.

Lesa skýrslu Péturs Björgvins.


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf