AkureyrarAkademían
akureyrarakademían, akureyrarakademía, akademía, academy, fræðasetur, fræðifólk, fræðimenn, akademía, Akureyri, Eyjafjörður, Norðurland, vinnuaðstaða
Fréttir
föstudagur 03.september 2010 - Stjórn Akureyrarakademíunnar

Á Akureyrarvöku 2010 stóð AkureyrarAkademían fyrir kynningu á starfsemi
félagsins. Um 120 einstaklingar sóttu viðburðinn þar sem þau Lára Sóley Jóhannsdóttir
og Hjalti Jónsson fóru á kostum. Í upphafi samverunnar var dagskrá Kvennafrídagsins kynnt og gert
stuttlega grein fyrir starfi AkureyrarAkademíunnar. Þá fluttu Lára og Hjalti nokkur íslensk og írsk lög. Að því loknu var gestum boðið upp á léttan morgunverð. Þegar allir höfðu gætt sér af krásunum sem í boði voru tóku Lára og Hjalti aftur fram hljóðfærin.
Skoða má myndir frá samverunni hér á vefnum.
mánudagur 23.ágúst 2010 - Stjórn Akureyrarakademíunnar
miðvikudagur 12.maí 2010 - Stjórn Akureyrarakademíunnar
Á aðalfundi Akademíunnar þann 6. maí var kosin ný stjórn Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi. Hún er þannig skipuð:
- Þóra Pétursdóttir, formaður
- Pétur Björgvin Þorsteinsson, gjaldkeri
- Sólveig Hulsdunk Georgsdóttir, ritari
- Sigurgeir Guðjónsson, varamaður
- Guðmundur Árnason, varamaður
Ný stjórn hlakkar til að starfa með félagsmönnum á starfsárinu 2010-2011!
Um okkur
AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
...