AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Myndasafn
Söfn
-
Dagur hússins 2011
Á degi hússins 2011 fékk AkureyrarAkademían listakonurnar Örnu Valsdóttur og Guðrún Pálínu Guðmundsdóttur til liðs við sig og settu þær upp sýningu / voru með innsetningu í kennslueldhúsinu á miðhæð Húsmæðraskólans. Þetta rými hefur verið notað sem geymsla af Háskólanum á Akureyri um árabil og má vissulega muna sinn fífil fegri.17 Myndir
13.okt.2011 -
Akureyrarvaka 2010
Á Akureyrarvöku 2010 stóð AkureyrarAkademían fyrir kynningu á starfsemi félagsins. Um 120 einstaklingar sóttu viðburðinn þar sem þau Lára Sóley og Hjalti fóru á kostum. Dagskrá Kvennafrídagsins var kynnt og gert stuttlega grein fyrir starfi AkureyrarAkademíunnar. Pétur Björgvin Þorsteinsson gjaldkeri stjórnar tók myndirnar.12 Myndir
3.sep.2010 -
Vorþing 2010
Laugardaginn 27. mars hélt Akademían vorþing sitt, sem að þessu sinni var helgað rannsóknum og rannsóknastarfi á Norðurlandi. Akademían hlaut styrk frá Menningarráði Eyþings til viðburðarins en þingið var haldið í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga og Rannsókna- og þróunarstofnun Háskólans á Akureyri, auk þess sem Akureyrarstofa og Háskólinn á Akureyri komu að því.24 Myndir
3.sep.2010 -
Vorverk 2010
Í upphafi júní 2010 tóku félagar úr AkureyrarAkademíunni sig til að vanda og sinntu vorverkum í garðinum.12 Myndir
10.jún.2010 -
Kartöffluþing 2008
Laugardaginn 13. september 2008 stóð AkureyrarAkademían fyrir allsherjar afmælismálþingi til heiðurs kartöflum. Tilefnið var ekki eingöngu alþjóðlegt ár kartöflunnar, heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli kartaflna á Íslandi og það að 200 ár voru liðin síðan ræktun þeirra hófst í Búðargilinu á Akureyri. Við þetta tækifæri tók Hugi Hlynsson nokkrar myndir sem nú eru aðgengilegar hér á vef Akademíunnar.69 Myndir
1.nóv.2009 -
Fyrirlestur Valgerðar 24.09.09
Fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar hófst fimmtudaginn 24. september kl. 17:00 með erindi Valgerðar H. Bjarnadóttur sem nefndist: Vanadísarsaga, völvu og valkyrju - helgar ímyndir úr minni íslenskrar konu.12 Myndir
24.sep.2009 -
Akureyrarvaka 2009
AkureyrarAkademían stóð fyrir umræðusíðdegi á Akureyrarvöku laugardaginn 29. ágúst þar sem athyglinni var beint að menningunni og mannlífinu og þeim verðmætum sem þar búa og í möguleikum á "upprisu". Spurt var: Í hverju felst "upprisan"? Framsöguerindi hélt Ævar Kjartansson, útvarpsmaður og guðfræðingur. Í pallborði voru Andrea Hjálmsdóttir, félagsfræðingur, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings og Gísli Aðalsteinsson, hagfræðingur.16 Myndir
29.ágú.2009 -
Akureyrarvaka
Á Akureyrarvöku var margt um að vera í Akademíunni. Laufáshópurinn sló við Akademíuna með orfi og ljá. Að þessu sinni fór fram svokallaður engjasláttur, nema í mýflugumynd. Haldið var í þá hefð að koma með nesti í sokk. Mennirnir með ljáinn voru 5-6 og hrífurnar litlu færri. Rakað var í drýli í rigningunni, en hún var þó ekki nema slátturekja að sögn kunnugra. Jón B. Björnsson hélt svo vel sótt erindi um Helvíti og var salurinn fullsetinn, rétt um 100 manns. Jón hafði þó á orði eftir erindið að honum þætti vont að um 900 manns á Akureyri, sem ættu vísa vist í helvíti myndu ekki fá að vita á hverju þeir ættu von.6 Myndir
1 Undiralbúm
5.sep.2008 -
Sláttur við Akademíuna
Í sumar var slegið með orfi og ljá við Akademíuna. Fámenn en góðmenn hersing manna skemmti sér við þjóðlegan slátt í blíðskaparviðri og bjó til heysátu á fjórum dögum.5 Myndir
25.ágú.2008 -
saudkindarseidur 11.07
myndir frá Sauðkindaseiði - haustþingi AkureyrarAkademíunnar 20073 Myndir
6.nóv.2007 -
Aðalfundur 22. mars 2007
Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, öðru nafni AkureyrarAkademían, hélt sinn fyrsta aðalfund 22. mars 2007. Í félaginu voru þá um 50 félagsmenn. Í frétt á akureyri.is um aðalfundinn segir m.a.: ,,AkureyrarAkademían, sem stofnuð var í maí í fyrra, hefur auk daglegra starfa staðið fyrir fyrirlestrum, uppákomum, málþingi og félagsfundum, sem allt hefur verið vel sótt. Félagið hefur nú fengið fjárframlög frá ríki og bæ, auk styrks frá KEA, og hyggst standa fyrir fjölbreyttri starfsemi á árinu, þar sem m.a. verður lögð áhersla á að virkja hinn almenna félagsmann og tengja starfsemina við sem flestar hliðar mannlífsins. Þá verður leitast við að ná góðum tengslum við fræðimenn um allt Norðurland, en félagar eru nú flestir af Eyjafjarðarsvæðinu. Í máli fráfarandi formanns, Jóns Hjaltasonar, kom fram að lögð hefur verið áhersla á að félagið verði eins konar regnhlífarsamtök fyrir fagfélög fræðimanna á svæðinu og hefur m.a. verið í virku samstarfi við Sagnfræðingafélagið og Félag áhugamanna um heimspeki um fyrirlestra og opna fundi. Þá er samstarf við ReykjavíkurAkademíuna mikilvægur þáttur í uppbyggingu starfseminnar."1 Myndir
22.mar.2007 -
Stofnfundur 20. apríl 2006
Myndir frá stofnfundi AkureyrarAkademíunnar 20. apríl 2006. Í fréttatilkynningu frá undirbúningshópnum sem birtist m.a. á Dagur.net sagð: ,,Stofnfundur félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn í Deiglunni, að kvöldi Sumardagsins fyrsta, 20. apríl 2006, kl.20:30 Undanfarið hefur verið unnið að stofnun félags þeirra sem hér nyrðra stunda fræðimennsku í sjálfsmennsku, að einhverju leyti að fyrirmynd ReykjavíkurAkademíunnar syðra. Á undirbúningsfundi sem u.þ.b. 15 konur og karlar sóttu í Deiglunni 15.mars s.l. var ákveðið að stefna sem fyrst að stofnun félagsins og vinna síðan að því að koma á fót sjálfseignarstofnun, einhvers konar AkureyrarAkademíu. Nú er ekki eftir neinu að bíða og félagið mun stofnað á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta. Á dagskrá verða: Lög félagsins - drög lögð fram, umræður og samþykkt Stjórnarkjör (formaður, tveir aðalmenn og tveir til vara) Almennar umræður *** Í drögum að lögum, sem lögð verða fram á fundinum kemur þetta fram: 2.gr. Tilgangur XXX (félagsins) er að vera aflvaki fræðilegra rannsókna og miðlunar þeirra, með sérstakri áherslu á þverfaglegar rannsóknir og alþjóðlegt samstarf. XXX stendur fyrir virku samstarfi sjálfstætt starfandi fræðimanna og er vettvangur umræðu um samfélag og menningu. 3. gr. Félagar í XXX geta þeir fræðimenn orðið sem lokið hafa háskólaprófi og/eða sinna fræði- eða ritstörfum. 4. gr. Aðild að XXX geta einnig átt stofnanir, fyrirtæki og félög, svo fremi tilgangur þeirra og starfsemi samræmist lögum þessum. Mætið gjarna öll þið sem áhuga hafið á málefninu og /eða sem ofangreindar skilgreiningar geta átt við. " Myndirnar fjórar tók Ragnar Hólm4 Myndir
20.apr.2006


