AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Aðalfundur 22. mars 2007
Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, öðru nafni AkureyrarAkademían, hélt sinn fyrsta aðalfund 22. mars 2007. Í félaginu voru þá um 50 félagsmenn.
Í frétt á akureyri.is um aðalfundinn segir m.a.: ,,AkureyrarAkademían, sem stofnuð var í maí í fyrra, hefur auk daglegra starfa staðið fyrir fyrirlestrum, uppákomum, málþingi og félagsfundum, sem allt hefur verið vel sótt. Félagið hefur nú fengið fjárframlög frá ríki og bæ, auk styrks frá KEA, og hyggst standa fyrir fjölbreyttri starfsemi á árinu, þar sem m.a. verður lögð áhersla á að virkja hinn almenna félagsmann og tengja starfsemina við sem flestar hliðar mannlífsins. Þá verður leitast við að ná góðum tengslum við fræðimenn um allt Norðurland, en félagar eru nú flestir af Eyjafjarðarsvæðinu.
Í máli fráfarandi formanns, Jóns Hjaltasonar, kom fram að lögð hefur verið áhersla á að félagið verði eins konar regnhlífarsamtök fyrir fagfélög fræðimanna á svæðinu og hefur m.a. verið í virku samstarfi við Sagnfræðingafélagið og Félag áhugamanna um heimspeki um fyrirlestra og opna fundi. Þá er samstarf við ReykjavíkurAkademíuna mikilvægur þáttur í uppbyggingu starfseminnar."


