AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Akureyrarvaka
Á Akureyrarvöku var margt um að vera í Akademíunni. Laufáshópurinn sló við Akademíuna með orfi og ljá. Að þessu sinni fór fram svokallaður engjasláttur, nema í mýflugumynd. Haldið var í þá hefð að koma með nesti í sokk. Mennirnir með ljáinn voru 5-6 og hrífurnar litlu færri. Rakað var í drýli í rigningunni, en hún var þó ekki nema slátturekja að sögn kunnugra.
Jón B. Björnsson hélt svo vel sótt erindi um Helvíti og var salurinn fullsetinn, rétt um 100 manns. Jón hafði þó á orði eftir erindið að honum þætti vont að um 900 manns á Akureyri, sem ættu vísa vist í helvíti myndu ekki fá að vita á hverju þeir ættu von.
Undirsöfn
- <Til baka>
-
Helvítiserindi Jóns Björnssonar
Jón Björnsson sálfræðingur og rithöfundur flutti erindi á Akureyrarvöku um vistina í Helvíti.6 Myndir
5.sep.2008


