AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Akureyrarvaka 2009
AkureyrarAkademían stóð fyrir umræðusíðdegi á Akureyrarvöku laugardaginn 29. ágúst þar sem athyglinni var beint að menningunni og mannlífinu og þeim verðmætum sem þar búa og í möguleikum á "upprisu". Spurt var: Í hverju felst "upprisan"?
Framsöguerindi hélt Ævar Kjartansson, útvarpsmaður og guðfræðingur. Í pallborði voru Andrea Hjálmsdóttir, félagsfræðingur, Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings og Gísli Aðalsteinsson, hagfræðingur.


