AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Dagur hússins 2011
Á degi hússins 2011 fékk AkureyrarAkademían listakonurnar Örnu Valsdóttur og Guðrún Pálínu Guðmundsdóttur til liðs við sig og settu þær upp sýningu / voru með innsetningu í kennslueldhúsinu á miðhæð Húsmæðraskólans. Þetta rými hefur verið notað sem geymsla af Háskólanum á Akureyri um árabil og má vissulega muna sinn fífil fegri.


