AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Kartöffluþing 2008
Laugardaginn 13. september 2008 stóð AkureyrarAkademían fyrir allsherjar afmælismálþingi til heiðurs kartöflum. Tilefnið var ekki eingöngu alþjóðlegt ár kartöflunnar, heldur einnig 250 ára ræktunarafmæli kartaflna á Íslandi og það að 200 ár voru liðin síðan ræktun þeirra hófst í Búðargilinu á Akureyri. Við þetta tækifæri tók Hugi Hlynsson nokkrar myndir sem nú eru aðgengilegar hér á vef Akademíunnar.


