AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Sláttur við Akademíuna
Í sumar var slegið með orfi og ljá við Akademíuna. Fámenn en góðmenn hersing manna skemmti sér við þjóðlegan slátt í blíðskaparviðri og bjó til heysátu á fjórum dögum.


