AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Stofnfundur 20. apríl 2006
Myndir frá stofnfundi AkureyrarAkademíunnar 20. apríl 2006.
Í fréttatilkynningu frá undirbúningshópnum sem birtist m.a. á Dagur.net sagð:
,,Stofnfundur félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn í Deiglunni, að kvöldi Sumardagsins fyrsta, 20. apríl 2006, kl.20:30
Undanfarið hefur verið unnið að stofnun félags þeirra sem hér nyrðra stunda
fræðimennsku í sjálfsmennsku, að einhverju leyti að fyrirmynd ReykjavíkurAkademíunnar syðra.
Á undirbúningsfundi sem u.þ.b. 15 konur og karlar sóttu í Deiglunni 15.mars
s.l. var ákveðið að stefna sem fyrst að stofnun félagsins og vinna síðan að
því að koma á fót sjálfseignarstofnun, einhvers konar AkureyrarAkademíu.
Nú er ekki eftir neinu að bíða og félagið mun stofnað á fimmtudaginn,
sumardaginn fyrsta.
Á dagskrá verða:
Lög félagsins - drög lögð fram, umræður og samþykkt
Stjórnarkjör (formaður, tveir aðalmenn og tveir til vara)
Almennar umræður
***
Í drögum að lögum, sem lögð verða fram á fundinum kemur þetta fram:
2.gr.
Tilgangur XXX (félagsins) er að vera aflvaki fræðilegra rannsókna og
miðlunar þeirra, með sérstakri áherslu á þverfaglegar rannsóknir og
alþjóðlegt samstarf.
XXX stendur fyrir virku samstarfi sjálfstætt starfandi fræðimanna og er
vettvangur umræðu um samfélag og menningu.
3. gr.
Félagar í XXX geta þeir fræðimenn orðið sem lokið hafa háskólaprófi og/eða
sinna fræði- eða ritstörfum.
4. gr.
Aðild að XXX geta einnig átt stofnanir, fyrirtæki og félög, svo fremi
tilgangur þeirra og starfsemi samræmist lögum þessum.
Mætið gjarna öll þið sem áhuga hafið á málefninu og /eða sem ofangreindar
skilgreiningar geta átt við. "
Myndirnar fjórar tók Ragnar Hólm


