AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.
Flýtilyklar
Vorþing 2010
Laugardaginn 27. mars hélt Akademían vorþing sitt, sem að þessu sinni var helgað rannsóknum og rannsóknastarfi á Norðurlandi. Akademían hlaut styrk frá Menningarráði Eyþings til viðburðarins en þingið var haldið í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga og Rannsókna- og þróunarstofnun Háskólans á Akureyri, auk þess sem Akureyrarstofa og Háskólinn á Akureyri komu að því.


