English

AkureyrarAkademían

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi Nú stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Við í AkureyrarAkademíunni viljum vekja athygli á þessu þarfa

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi


Nú stendur yfir 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi. Við í AkureyrarAkademíunni viljum vekja athygli á þessu þarfa framtaki og benda sérstaklega á tvo viðburði á Akureyri á næstunni:

* Kvikmyndasýning í Sambíóunum á Akureyri, miðvikudaginn 30. nóvember, kl. 18:00.
* Ekki líta undan - hádegisstund í safnaðarheimili Glerárkirkju, föstudaginn 2. desember kl. 12:00.

Einnig má nálgast dagskrána í heild sinni á vefnum sem pdf-skjal.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf