English

AkureyrarAkademían

"Potturinn" - Fundur athafnafólks í fræða- og menningarmiðlun á Akureyri Nú sem aldrei fyrr er mikil gróska í fræða-

"Potturinn" - Fundur athafnafólks í fræða- og menningarmiðlun á Akureyri

Nú sem aldrei fyrr er mikil gróska í fræða- ogmenningarstarfi á Akureyri. Framboð hefur aukist á hverskyns viðburðum þar semsamfélagsleg og menningarleg málefni eru krufin og rædd frá mismunandisjónarhornum. Í þessari grósku býr mikill auður sem nýta mætti ennfrekar. Þessvegna hefur AkureyrarAkademían ákveðið að hafa frumkvæði að þvíað leiða saman forystufólk og frumkvöðla hinna ýmsu hópa, félagasamtaka ogstofnana sem standa fyrir fræðilegum viðburðum í bænum og boðar til fundar í húsnæði sínu mánudaginn 18. janúar kl. 17.-18.30.

Markmið fundarins er að miðla reynslu og upplýsingum og ennfremur að skapa tengslanet sem nýst gæti öllum aðilum, m.a. til þess að koma starfi hvers og eins á framfæri og setja það í samhengi við annað sem í boði er. Hugmyndin er svo að í framtíðinni gætu þessir aðilar komi saman tvisvar á ári, í upphafi árs og að hausti, til skrafs og ráðagerða. 

Dagskrá fundarins á mánudaginn verður þannig háttað að fyrst gefst þátttakendum kostur á að kynna stuttlega þá starfsemi sem framundan er hjá þeim (til vors 2010), en síðari hluti fundarins verður með óformlegra sniði; spjall og kaffisopi.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf