mánudagur 25.maí 2009 - Stjórn Akureyrarakademíunnar - Lestrar 249
Þann 7. maí síðastliðinn var haldinn aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi. Á fundinum fór fram kjör nýrrar stjórnar félagsins fyrir starfsárið 2009-2010. Kosningin var átakalítil og er ný stjórn svo skipuð:
Þóra Pétursdóttir, formaður; Pétur Björgvin Þorsteinsson, gjaldkeri; Hermína Gunnþórsdóttir, ritari; Sigurður Bergsteinsson og Guðmundur Árnason, varamenn.
Minnt er á að hægt er að hafa samband við stjórn með því að senda tölvupóst á netfangið stjorn@akureyrarakademian.is.
Við hlökkum til þess að starfa með ykkur í vetur.
Kveðjur,
Ný stjórn


