Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn fimmtudaginn 7. maí 2009. Fundurinn fer fram í sal gamla Húsmæðraskólans að Þórunnarstræti 99 og hefst kl. 20.00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf en að þeim loknum munu Möðruvellingarnir Þóroddur Sveinsson og Bjarni E. Guðleifsson segja frá endurreisn Amtmannssetursins á Möðruvöllum.
Nýlega var komið á fót sjálfseignastofnuninni Amtmannssetrið á Möðruvöllum sem meðal annars rekur starfsemi í nýuppgerðu Leikhúsinu, sem er frá tímum Möðruvallaskóla. Amtmannssetrið stefnir að frekari uppbyggingu á staðnum og byggir framtíð þess á fjölbreyttri sögu staðarins, en þar hefur í tímans rás verið stórbýli, klaustur, amtmannssetur, skólasetur og loks prestsetur og rannsóknamiðstöð.


