English

AkureyrarAkademían

Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn í

Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi


Aðalfundur Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður haldinn í AkureyrarAkademíunni fimmtudaginn 6. maí kl. 17:00.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf.

Tillögur að lagabreytingum þurfa að berast stjórn minnst viku fyrir fundinn, eða í síðasta lagi á hádegi 29. apríl.

Nýjir félagar eru velkomnir, en hægt er að skrá sig í félagið hér á heimasíðunni.
Atkvæðisrétt á fundinum hafa félagsmenn sem viðstaddir eru og greitt hafa félagsgjald. Félagsgjald 2010 er 1500 kr og eru þeir félagar sem ekki hafa greitt hvattir til þess að leggja upphæðina inn á reikning félagsins:
Reikningsnúmer: 1145-26-3606
Kennitala: 550606-2080

kveðjur,
stjórnin

Fylgiskjöl: Ársreikningur 2009


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf