English

AkureyrarAkademían

Aðventugleði Akademóna Fimmtudagskvöldið 8. desember kl. 18:00 er aðventugleði Akademóna. Það kvöld er öll þau sem eru með vinnuaðstöðu í

Aðventugleði Akademóna

Fimmtudagskvöldið 8. desember kl. 18:00 er aðventugleði Akademóna. Það kvöld er öll þau sem eru með vinnuaðstöðu í AkureyrarAkademíunni hvött til að mæta ásamt fylgifiskum og eiga góða stund í fjölskrúðugum hópi Akademóna ásamt stjórn félagsins. Skráning er á netfangið stjorn@akureyrarakademian.is og gefur Pétur Björgvin nánari upplýsingar í síma 864 8451.


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf