English

AkureyrarAkademían

Af öskuhaugum fullveldis FORNLEIFARANNSÓKN Á MINJUM SÍLDARÁRANNA Á STRÖNDUMÞóra Pétursdóttir, MA í fornleifafræði frá Háskólanum í Tromsö, doktorsnemi í

Af öskuhaugum fullveldis

FORNLEIFARANNSÓKN Á MINJUM SÍLDARÁRANNA Á STRÖNDUM

Þóra Pétursdóttir, MA í fornleifafræði frá Háskólanum í Tromsö, doktorsnemi í fornleifafræði við sama skóla, heldur erindi í sal AkureyrarAkademíunnar, á efri hæð gamla Húsmæðraskólans við Þórunnarstræti 99, fimmtudaginn 1. desember kl. 17:00. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis.

Á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar risu tvær hátækni-stóriðjur í Árneshreppi á Strönum. Húnaflóinn var svartur af síld og síldarbræðslunum í Djúpavík og Ingólfsfirði var ætlað að mala gull. Líftími þeirra reyndist þó skammur og stórhuga draumar eru nú aðeins varðveittir í mosagrónum rústum verksmiðjanna.

Í erindinu verður sagt frá yfirstandandi rannsókn á minjum þessarar gullaldar og sérstaklega horft til Eyrar í Ingólfsfirði. Sumarið 2011 fór þar fram fornleifauppgröftur í þeim tilgangi að varpa ljósi á líf fólks á staðnum og kom þar margt skemmtilegt í ljós. Greint verður frá uppgreftrinum og niðurstöðum hans auk þess sem fjallað verður um það hvaða upplýsingagildi það hefur að róta í öskuhaugum nýliðinna tíma.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar veturinn 2011-2012
.


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf