fimmtudagur 19.janúar 2012 - Pétur Björgvin - Lestrar 4
Vegna frétta undanfarið um hugmyndir um sölu á gamla Húsmæðraskólanum er rétt að benda á að Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi - AkureyrarAkademían er áfram til húsa í gamla Húsmæðraskólanum. Í bréfi sem Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans á Akureyri sendi stjórn félagsins kemur fram að félaginu er tryggð aðstaðan til amk 1. júlí 2012. Nánar verður rætt um húsnæðismál og önnur mál félagsins á almennum félagsfundi, fimmtudaginn næsta, 19. janúar kl. 17:00.


