fimmtudagur 19.janúar 2012 - Pétur Björgvin - Lestrar 4
Minnt er á áður auglýstan félagsfund í Félagi sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi - AkureyrarAkademíunnar. Fundurinn verður haldinn í sal félagsins á efri hæð gamla Húsmæðraskólans, fimmtudaginn 19. janúar kl. 17:00. Rík áhersla er lögð á að þau sem nýta starfsaðstöðuna í húsinu mæti á fundinn. Á fundinum mun formaður félagsins segja frá fjárhagsstöðu félagsins, hugsanleg sala á húsinu verður til umræðu, starfsemi félagsins á vorönn verður rædd og þá sérstaklega hugmyndir um starfshópa í kringum helstu verkefni félagsins. Einnig verður nýtt fyrirkomulag á þrifum í húsinu kynnt og félagsfólk beðið að koma með ábendingar og athugasemdir til stjórnar. Fundinum er einnig ætlað að gagnast til undirbúnings aðalfundi félagsins sem haldinn verður 15. mars næstkomandi, en á aðalfundi verður meðal annars kjörinn nýr formaður.


