föstudagur 20.janúar 2012 - Pétur Björgvin - Lestrar 13
Á fundinum kom fram að í augnablikinu starfa 20 manns í húsinu. Ef pláss losnar líður að öllu jöfnu stuttur tími þar til að annar fræðimaður er fluttur inn í staðinn. Var fólk hvatt til að kynna sér skýrslu sem unnin var á síðasta ári í tilefni af fimm ára afmæli félagsins (aðgengileg hér á vefnum) og mikilvægi þess ítrekað að félagsfólk og velunnarar létu málefni félagsins sig varða. Þá tóku nokkrir fundargesta til máls og bentu á mikilvægi þess að einstaklingarnir sem mynda félagið væru iðnir við að koma AkureyrarAkademíunni á framfæri í ræðu og riti.
Pétur Björgvin benti á nauðsyn þess að sú greining á starfi félagsins sem hefði hafist með fimm ára skýrslunni þyrfti að halda áfram. AkureyrarAkademían hefði mikla sérstöðu í nærsamfélaginu á Akureyri sem og á Norðurlandi öllu. En þessi sérstaða væri ekki nægilega ljós, mikilvægt væri að við gerðum sjálfum okkur og öðrum það ljósar í hverju sérstaða AkureyrarAkademíunnar væri fólgin. Vissulega væri AkureyrarAkademían eini aðilinn utan höfuðborgarsvæðisins, sem sérhæfði sig í að bjóða upp á starfsaðstöðu fyrir fræðafólk, meistara- og doktorsnema í þverfaglegu, akademísku og menningarlegu samhengi eins og því sem væri til staðar í húsinu. Sú staðreynd væri þekkt. En skerpa þyrfti á sérstöðunni hvað aðra fræða-,fræðslu-, fyrirlestra- og menningarstarfsemi félagsins varðar. Þeim sem viðburðina sæktu væri það ljóst að viðburðir AkureyrarAkademíunnar mynda oft brú milli fræða og alþýðu, milli fræða og lista, þ.e. milli ólíkra sviða í samfélaginu. Viðburðir félagsins eru sóttir af fjölbreyttum hópi fólks og sjaldgjæft er að sjá breiddina sem finna má í fyrirlestraflóru AkureyrarAkademíunnar hjá öðrum sem standa fyrir fyrirlestrum og viðburðum.
Í máli sínu kom Pétur Björgvin inn á hugmyndina um sölu hússins og tjáði hann viðstöddum að það hefði verið ánægjulegt að rektor HA hefði í samráði við ráðuneyti og Akureyrarbæ, tekið þá ákvörðun að félaginu væri tryggt húsnæðið út júnímánuð 2012 að minnsta kosti. Væntanlega væru komnar af stað samræður milli ríkis og bæjar um sölu hússins. Í því samhengi benti Pétur Björgvin á mikilvægi nýlegs deiliskipulags.
Pétur sagðist álíta að félagið hefði á þessum tímapunkti um fjórar (mis(ó)færar) leiðir að velja varðandi húsakost fyrir félagið:
Fara strax að leita að öðru húsnæði
Vera í gamla Húsmæðraskólanum eins lengi og við getum þrátt fyrir hugmyndir um sölu
Leita samstarfs við eigendur um að þeir leyfi okkur að vera hér lengur
Kaupa húsið
Þá greindi Pétur Björgvin frá því að til væru dæmi um að ríkið semdi um eignayfirtöku á húsum með varðveislugildi og vísaði þar í dæmi sem finna má í fjárlögum ársins 2006. Þar var heimild þess efnis að ríkið afhenti Seyðisfjarðarkaupstað gamla sjúkrahúsið á Seyðisfirði. Forvitnilegt væri fyrir félagið að vita meira um sögu þess máls, en vitað er að það gekk ekki aðeins eftir, heldur studdi ríkið myndarlega með fjárframlagi við viðgerðir á húsinu.
Nokkrar umræður urðu um málefni hússins og fól fundurinn stjórn félagsins að standa fljótlega fyrir málþingi um húsið. Málþinginu væri ætlað að hjálpa félagsfólki og öðrum að átta sig á því hvað væri til ráða í stöðunni og hver hugsanleg framtíð hússins væri. Einnig var stjórn félagsins hvött til þess að forvitnast um málefni hússins hjá Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Til umræðu var líka sú hugmynd að stofna fjóra starfshópa innan félagsins. Fyrstu hugmyndir að starfshópunum eru sem hér segir:
- Félagsmálanefnd: Henni er ætlað að efla starfið meðal þeirra sem sitja við skrifborð í húsinu.
- Viðburðahópur: Honum er ætlað að halda utan um fimmtudagsfyrirlestrana, dag hússins og viðburð á Akureyrarvöku og auka tengsl við almennt félagsfólk.
- Fjáröflunarhópur: Honum er ætlað að sækja um styrki til frekari viðburða, haustþinga og vorþinga og vinna að þeim, reiknað er með að reynt sé að ráða verkefnisstjóra fyrir hvern viðburð.
- Húsráð: Skipuleggur ræstingar, eldhúsmálin, minni háttar viðgerðir og umsýslu innan húss og utan.
Á fundinum kom einnig fram að nokkrar breytingar verða á stjórn félagsins á aðalfundi:
Pétur Björgvin lætur af störfum eftir þriggja ára stjórnarsetu.
Sólveig lætur af störfum eftir tveggja ára stjórnarsetu.
Þóra lætur af störfum eftir fjögurra ára stjórnarsetu.
Jóhann situr áfram í aðalstjórn (ritari)
Kristín Þóra situr áfram í varastjórn
Fundi lauk þegar klukkan var langt gengin í sjö, en formaður kvaddi með þeim orðum að hann vonaði að fólk forðaðist hann ekki mikið á næstu vikum, vitandi að mjög líklega ætti hann erindi við félagsfólk þess efnis hvort það kæmi ekki í stjórn. Í því samhengi var ítrekað mikilvægi þess að formaður eða gjaldkeri þyrftu að vera úr hópi þeirra sem starfa í húsinu, en að sama skapi væri mikilvægt að í stjórn sætu líka einstaklingar sem væru frekar fulltrúar hinna almennu félagsmanna.
Glærur frá fundinum má nálgast hér.


