föstudagur 09.október 2009 - Stjórn Akureyrarakademíunnar - Lestrar 110
Þriðjudaginn 8. október kl. 16:00 verður haldið upp á dag hússins í Akademíunni. Tilefnið er það að þennan dag árið 1945 var hús Húsmæðraskólans við Þórunnarstræti, sem nú veitir Akademónum skjól, vígt.
Jón Hjaltason sagnfræðingur og fyrrverandi formaður Akademíunnar mun segja frá sögu hússins og núverandi formaður mun halda stutt ávarp. Þá verður tónlistarflutningur og boðið upp á kaffi og kaffibrauð að hætti húsmæðra.
Tilgangurinn með viðburðinum er ekki síst að opna þetta glæsilega hús fyrir gestum og gangandi og um leið að vekja athygli á þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fer fram í húsinu - og hefur farið fram í húsinu í áratugi.
Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir!
Stjórnin


