English

AkureyrarAkademían

Ef húsagrunnar og veggjabrot gætu talað... Á fimmtudag, 11. mars, flytur Sif Jóhannesdóttir,

Ef húsagrunnar og veggjabrot gætu talað...

Á fimmtudag, 11. mars, flytur Sif Jóhannesdóttir, þjóðfræðingur, erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar. Erindið nefnir hún "Ef húsagrunnar og veggjabrot gætu talað: Miðlun sögu á Skálum á Langanesi".

Fyrirlesturinn fer að vanda fram í gamla Húsmæðraskólanum og hefst kl. 17:00. 

Efni erindisins er tvíþætt. Annars vegar verður stiklað á stóru í sögu þorpsins á Skálum á Langanesi, þar sem m.a. útgerðarhættir, strandavarðstöðvar hersins og samgöngur koma við sögu. Hins vegar verður sagt frá þeim leiðum sem valdar voru til þess að miðla þessari sögu til þeirra sem sækja eyðiþorpið Skála heim í dag.

Á Skálum á Langanesi eru umfangsmiklar minjar þorps sem einu sinni var. Húsagrunnar, hálfhrundir veggir, brunnar, bryggja og grafreitur. Allt vitnar þetta um fólkið sem þarna bjó og stundaði búskap og útgerð. Þorpið byggðist á fyrri hluta 20. aldar og bjuggu þar um tíma yfir 100 manns. Blómaskeið staðarins varði þó stutt og 1955 var Skálajörðin komin í eyði.

Á árunum 2008-2009 stóð Langanesbyggð fyirr söfnun munnlegra heimilda um Skálaþorpið og lífið þar. Í framhaldinu var leitað leiða til þess að miðla sögunni til þeirra sem í dag sækja þorpið heim. Ástæðurnar fyrir því að ráðist var í þetta verkefni voru í meginatriðum tvær. Annars vegar hinn hefðbundni ótti við að glata sögunni og hins vegar vilji fólks til þess að miðla þeirri sögu til sífellt vaxandi fjölda gesta.

Sif Jóhannesdóttir er þjóðfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún starfar í dag hjá Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga og hjá Urðarbrunni, félagi um menningararf og miðlun hans.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf