English

AkureyrarAkademían

Frásagnir af degi hússins Þann 13. október síðastliðinn var dýrðardagur í gamla

Frásagnir af degi hússins

Viðtal við formann félagsins birtist á N4
Viðtal við formann félagsins birtist á N4
Þann 13. október síðastliðinn var dýrðardagur í gamla Húsmæðraskólanum þar sem haldið var upp á að þennan dag, árið 1945, var Húsmæðraskólinn á Akureyri settur í fyrsta sinn, og húsið sem í dag veitir fræðafólki AkureyrarAkademíunnar skjól og samastað í tilverunni var vígt. Í tilefni dagsins flutti formaður félagsins, Þóra Pétursdóttir fornleifafræðingur erindi. Lesa má erindið í heild sinni í grein á hugsandi.is en einnig var tekið viðtal við Þóru sem birtist á N4 og er það nú aðgengilegt á netinu.


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf