Á fimmtudaginn, 25. mars kl.17:00, flytur Þóroddur Bjarnason, félagsfræðingur við Háskólann á Akureyri, erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar. Erindið nefnir hann "Ertu á förum? Framtíð búsetu á norðanverðum Tröllaskaga".
Erindið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um fólksfækkun á Ólafsfirði og Siglufirði frá sjónarmiði þeirra sem þar búa og hinna sem flutt hafa á brott, en flutningsjöfnuður þessara tveggja byggðakjarna sveitarfélagsins Fjallabyggðar hefur verið neikvæður um tvö prósent á ári síðastliðin ár. Vonir standa til að byggð á þessu svæði styrkist verulega með opnun Héðinsfjarðarganga sumarið 2010 en lítið er þó vitað um forsendur þes að hægt verði að hægja á fólksfækkun eða jafnvel snúa vörn í sókn.
Hér verður byggt á þrenns konar gögnum til þess að skyggnast inn í framtíð búsetu á norðanverðum Tröllaskaga. Í fyrsta lagi verða gögn Hagstofu Íslands um mannfjöldaþróun og búferlaflutninga notuð til þess að draga upp mynd af þróun mála á þessu svæði á undanförnum áratugum. Í öðru lagi verður byggt á viðtölum við brottflutta íbúa á mismunandi aldurskeiðum í því skyni að varpa ljósi á ástæður búferlaflutninga og líkur á endurkomu til Fjallabyggðar. Í þriðja lagi verða framtíðaráform núverandi íbúa metin með aðstoð spurningalista og viðtala. Loks verður framtíð búsetu á þessu svæði reifuð í samhengi við byggðaþróun á Íslandi á 21. öld.


