English

AkureyrarAkademían

Fátækralöggjöfin 1834 og geðveikir á Íslandi Fimmtudaginn 7. janúar kl. 17:00 flytur Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur,

Fátækralöggjöfin 1834 og geðveikir á Íslandi

sigurgeir_120_120Fimmtudaginn 7. janúar kl. 17:00 flytur Sigurgeir Guðjónsson, sagnfræðingur,  erindi sem nefnist Fátækralöggjöfin 1834 og geðveikir á Íslandi. Erindið er hluti af fimmtudagsfyrirlestrum Akademíunnar og það fyrsta á árinu 2010. Aðgangur er ókeypis, allir eru velkomnir og hvattir til að taka þátt í umræðum að loknum fyrirlestrinum, bæði í fyrirlestrarsal sem og yfir kaffi og meðlæti þar á eftir.

 

Fátækralöggjöfin sem var lögleidd árið 1834 mótaði nokkuð þau úrræði sem beitt var gegn geðveiku fólki. Milliþinganefndin sem stofnuð var 13. nóvember árið 1901 var ætlað að endurskoða fátækralöggjöf landsins. Stofnun Kleppspítala árið 1907 var mikilvægt skref í umbótum á aðstæðum geðveikra á Íslandi. Í þessum fyrirlestri er ætlunin að fjalla um þau áhrif sem fátækralöggjöfin hafði á aðstæður þeirra. Nefnd verða dæmi um aðstæður geðveiks fólks og hvernig ákveðnir einstaklingar reyndu að gera líf geðveikra bærilegra með því að veita þeim húsaskjól og aðgang að nauðþurftum.

Sigurgeir Guðjónsson hefur frá árinu 2005 unnið að doktorsritgerð ísagnfræði við HÍ. Vinnuheiti verksins er Íslensk geðheilbrigðissaga átímabilinu 1838-1910, en 1838 voru fyrstu hugmyndir um umbætur í málefnum geðveikra settar fram. Fyrri hluta árs 2008 dvaldi Sigurgeir við Centreof history of medicine við Warrwick háskóla. Hann lauk prófi íkennslufræðum frá HA 1999 og stundaði kennslu á framhaldsskólastigiárin 1998-2009. Sigurgeir er með BA próf í sagnfræði frá HÍ 1991 og MApróf í sagnfræði frá HÍ 1996. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1985.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf