English

AkureyrarAkademían

Fimmtudagsfyrirlestur - Rými í mynd Á fimmtudaginn, 14. maí, verður síðasti fimmtudagsfyrirlestur vetrarins. Að

Fimmtudagsfyrirlestur - Rými í mynd

Á fimmtudaginn, 14. maí, verður síðasti fimmtudagsfyrirlestur vetrarins. Að þessu sinni er það Hermann Stefánsson bókmenntafræðingur sem flytur erindi sem hann kallar "Rými í mynd". Fyrirlesturinn fer að venju fram í gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti og hefst kl 17:00.

Í erindinu ræðir Hermann Stefánsson, rithöfundur og bókmenntafræðingur, um fréttaljósmyndir í dagblöðum og les í merkingu þeirra, allt frá myndum af þjóðhöfðingjum heimsins og Íslands, sem virðast einfaldar andlitsmyndir við fyrstu sýn, til myndanna með fréttunum af Britney Spears og mynda af Búsáhaldabyltingunni.

Hugað verður að fagurfræðinni sem fréttaljósmyndum fylgja og því velt upp hvernig ljósmyndun er alltaf pólitískt athæfi. Fjallað verður um tengsl orða og mynda og hvernig fréttin er sögð með myndinni.

Mynd er aldrei bara mynd, mynd er morð, mynd er aftaka.

Sjáumst, Stjórnin.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf