English

AkureyrarAkademían

Fimmtudagsfyrirlestur og sumarkoma í Akademíunni Á fimmtudagin, sumardaginn fyrsta, flytur Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, erindi í

Fimmtudagsfyrirlestur og sumarkoma í Akademíunni

Á fimmtudagin, sumardaginn fyrsta, flytur Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur, erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar en erindið nefnir hún 
"Mótun fagstéttar: Fyrsta kynslóð faglærðra hjúkrunarkvenna á Íslandi".
Fyrirlesturinn fer fram í gamla Húsmæðraskólanum og hefst kl. 17:00.

Að fyrirlestrinum loknum notum við tækifærið og fögnum sumarkomunni með ljúfum veitingum og sólskini!
Fyrstu hjúkrunarkonurnar sem stundað höfðu skipulagt nám í hjúkrun hófu störf á Íslandi í lok 19. aldar. Þær voru erlendar en um og eftir aldamótin fóru fáeinar íslenskar konur utan í hjúkrunarnám. Á þriðja áratugnum byggðu hjúkrunarkonur upp nám í hjúkrunarfræði hér á landi.

Í erindinu verður sjónum beint að þeim konum sem fyrstar gripu tækifærið til að afla sér hjúkrunarmenntunar á Íslandi. Fjallað verður um bakgrunn þeirra, uppruna og nám en megináhersla verður lögð á að varpa ljósi á félagsmótun stéttarinnar.

Margrét Guðmundsdóttir er sagnfræðingur að mennt og er kvennasaga hennar sérsvið. Unanfarin ár hefur Margrét unnið að rannsókn á sögu hjúkrunar á Íslandi og er bók þess efnis væntanleg frá henni innan skamms.


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf