English

AkureyrarAkademían

Fortíðin í spegli nútímans Á fimmtudaginn, þann 11 febrúar, mun Dr. Ingibjörg Ágústsdóttir,

Fortíðin í spegli nútímans

Á fimmtudaginn, þann 11 febrúar, mun Dr. Ingibjörg Ágústsdóttir, bókmenntafræðingur flytja erindi í fyrirlestraröð Akademíunnar. Erindið nefnir hún "Fortíðin í spegli nútímans: Þrjár drottningar Tudor tímabilsins í breskum nútímabókmenntum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum".

Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og er öllum opinn. 

Fyrirlesturinn fjallar um túlkun breskra nútímabókmennta, kvikmynda og sjónvarpsþátta á sögu þriggja drottninga sem settu svip sinn á Tudor tímabilið svokallaða, fóru með völd um lengri eða skemmri tíma, og sem allar er hægt að túlka sem fórnarlömb. Þær eru Anna Boleyn, önnur eiginkona Hinriks áttunda, Lady Jane Grey, eða "níu daga drottningin", og María Stúart Skotadrottning.

Teknar verða fyrir þrjár nýlegar skáldsögur eftir kvenkyns rithöfunda sem byggja á sögu þessara kvenna og einnig verður fjallað lítilsháttar um kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem byggja á þessu tímabili í breskri sögu. Leitast verður við að svara því hvað það er sem gerir þetta tímabil svo vinsælt, hvort og þá hvernig sögulegum staðreyndum sé fórnað til að höfða betur til lesenda/áhorfenda og hverjar séu birtingarmyndir kvenfrelsisviðhorfa nútímans í þessum skáldsögum og kvikmyndum.

 



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf