Mánudaginn 8. febrúar kl. 15:00 verður haldið málþing í Akademíunni undir yfirskriftinni "Hvað er kreppa?" Málþingið er haldið í samstarfi við Sagnfræðingafélag Íslands, en erindin á þinginu eru hluti af hádegisfyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins frá liðnu hausti. Fundarstjóri verður Kristín Ástgeirsdóttir.
Eins og venjulega er aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
„Hvað er kreppa?“
Mánudaginn 8. febrúar kl. 15:00 í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99
Fundarstjóri: Kristín Ástgeirsdóttir
15:00 Húsið opnar
15:15 Kristín Ástgeirsdóttir
Málþingið sett
15:20 Viðar Hreinsson, bókmenntafræðingur
Er einhver að hlusta? Um ótta og eymd
hugvísindanna
16:00 Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður
Kreppan og kunningjaþjóðfélagið
16:40 Hlé
17:00 Guðmundur Hálfdánarson, sagnfræðingur
Er íslenskt fullveldi í kreppu?
17:40 Umræður
18:00 Þingslit


