Málþing þar sem fjallað verður um Ísland og ímyndir norðursins verður haldið í AkureyrarAkademíunni (gamla Húsmæðraskólanum) laugardaginn 21. mars 2009. Sex fræðimenn munu flytja erindi á málþinginu en svo verður hvatt til umræðna og boðið upp á léttar veitingar. Fundarstjóri er Edward Huijbens.
Dagskráin er öllum opin og er ekkert þátttökugjald.
Málþingið er samstarf AkureyrarAkademíunnar og INOR verkefnahópsins. INOR, eða Ísland og ímyndir norðursins, er þverfaglegt og fjölþjóðlegt samstarfsverkefni innan hug- og félagsvísinda sem hefur að markmiði rannsóknir á ímyndum norðursins og hvernig Ísland birtist í slíkri ímyndasköpun - í fortíð og nútíð. Til frekari fróðleiks um INOR og rannsóknir hópsins er bent á heimasíðuna www.inor.is
Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:
11:00 Húsið opnar – boðið upp á kaffi og meðlæti
12:00 Málþingið sett
12:20 Sumarliði R. Ísleifsson, sagnfræðingur: Hugmyndin um norðrið, nokkrar birtingarmyndir.
12:40 Marion Lerner, menningar- og þýðingafræðingur: Ímyndir norðursins og hin háleita íslenska náttúra. Leitin að sjálfsmynd Íslendinga í upphafi 20. aldar.
13:00 Kristinn Schram, þjóðfræðingur: Norðrið í iðkun matarhefðar.
13:20 Umræður
14:00 Hlé – boðið upp á léttar veitingar
14:50 Hildigunnur Ólafsdóttir, afbrotafræðingur: Ímyndir áfengisneyslu Íslendinga.
15:10 Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, deildarstjóri ferðamáladeildar Háskólans á Hólum: Ímyndarsköpun landshlutanna: Aðferðir og leiðir.
15:30 Guðrún Helgadóttir, prófessor við Háskólann á Hólum: Í hærusekk og ösku.
15:50 Umræður
Með von um að sjá ykkur sem flest,
bestu kveðjur,
Stjórnin


