English

AkureyrarAkademían

Íslamsfælni Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 17:00 heldur Pétur Björgvin Þorsteinsson fyrirlestur í AkureyrarAkademíunni sem hann nefnir: ÍSLAMSFÆLNI.

Íslamsfælni

Fimmtudaginn 17. nóvember kl. 17:00 heldur Pétur Björgvin Þorsteinsson fyrirlestur í AkureyrarAkademíunni sem hann nefnir: ÍSLAMSFÆLNI. Fyrirlesturinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis og heitt á könnunni.
Þau tíu ár frá því að árásin var gerð á tvíburaturnana hefur athygli fræðimanna beinst í auknum mæli að íslamfælni (e. Islamophobia). Sérstaða íslamsfælni er sú að hún beinist gegn ákveðnum hópi sem mótaður er af einum trúarbrögðum en á annars jafnvel lítið sameiginlegt. Fyrirlesturinn byggir að stærstum hluta á ritrýndri grein sem birtist í Glímunni, óháðu tímariti um guðfræði og samfélag, í upphafi ársins. Þar er gerð tilraun til þess að greina á milli faglegrar umfjöllunar um íslam annars vegar og umfjöllunar sem er lituð af íslamsfælni hins vegar.

Pétur Björgvin Þorsteinsson er með MA gráðu í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst. Hann starfar sem djákni í Glerárkirkju og er formaður Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi (AkureyrarAkademíunnar).

Tengt efni:
Ísland, Evrópa og Íslamfælni: Grein á hugsandi.is.
Auglýsing til útprentunar: PDF-skjal.
Glærur fyrirlestrarins: PDF-skjal.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf