English

AkureyrarAkademían

Kvenlegir þræðir - konur í iðnaði á Akureyri Fimmtudaginn 26. janúar kl. 17:00 heldur Andrea Hjálmsdóttir, félagsfræðingur og lektor við Háskólann á

Kvenlegir þræðir - konur í iðnaði á Akureyri

Fimmtudaginn 26. janúar kl. 17:00 heldur Andrea Hjálmsdóttir, félagsfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri fyrirlestur í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti 99. Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00, allir velkomnir og heitt á könnunni. Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar.

Íslenskar konur hafa löngum verið mjög virkar á vinnumarkaði. Þrátt fyrir það virðist framlegð þeirra liggja í skuggum samfélagsins. Hér eru kynntar niðurstöður viðtalsrannsóknar sem gerð var á meðal kvenna sem unnu á Verksmiðjunum á Akureyri um miðja síðustu öld. Rannsóknargögnin gáfu ótvírætt til kynna að seinni vakt kvenna á Verksmiðjunum (en konur með fjölskyldu unnu gjarnan á kvöldvöktum) endurspegli ‘seinni vakt’ kvenna enn í dag. Líkt og konurnar á Verksmiðjunum um og eftir miðja síðustu öld, vinnur hin íslenska samtímakona á tveimur vöktum, heima og heiman. Í máli kvennanna kom fram, í samræmi við væntingar og orðræðu um miðja síðustu öld, að sjálfsmynd verksmiðjukvennanna tengdist fremur heimilinu en vinnunni. Vinnusjálf þeirra var dulið í skugga heimilisins. Í rannsókninni spegla konur í fortíð konur í nútíð. Greining á reynslu og upplifun verksmiðjukvennanna gefur til kynna að hin pólitíska rétthugsun nútímans hafi sökkt hinum kynbundna veruleika í kviksyndi sem erfitt reynist að skoða og bregðast við. Ætla má að sú orðræða, sem byggir á hugmyndum um að jafnrétti hafi verið náð, sé fremur hluti bakslags í jafnréttisbaráttu en framþróunar.

Hefur þú endurnýjað félagsskráningu þína árið 2011? Eða vilt þú ganga í félagið? Endilega skráðu þig hér.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf