mánudagur 10.október 2011 - Pétur Björgvin - Lestrar 8
Það er líf og fjör í AkureyrarAkademíunni. Nýtt fólk flytur inn, hjá öðrum breytast aðstæður, verkefni verða til á öðrum landshornum eða bókasafnið í Kaupmannahöfn fær óvænt aðdráttarafl vegna þess að þar eru gögnin sem nauðsynlega þarf að kynna sér fyrir rannsóknina. Og nú var að losna pláss.
Í kjallara gamla Húsmæðraskólans eru laus tvö samliggjandi vinnuherbergi með glugga í austurátt. Þau gætu hentað litlu rannsóknarteymi, hópi meistaranema sem vantar sameiginlega vinnuaðstöðu, listafólki eða félagasamtökum.
Áhugasamir sendi póst á stjórn félagsins stjorn [hjá] akureyrarakademian.is