English

AkureyrarAkademían

Lifandi talmál eða talandi ritmál? Fimmtudaginn 25. febrúar flutur Sverrir Páll Erlendsson, íslenskufræðingur,

Lifandi talmál eða talandi ritmál?

Fimmtudaginn 25. febrúar flutur Sverrir Páll Erlendsson, íslenskufræðingur, erindið Íslenska - lifandi talmál eða talandi ritmál? í fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar. Fyrirlesturinn hefst kl 17:00 og er öllum opinn.

Í erindinu mun Sverrir Páll fjalla um hvernig fólk lagaði málið að þörfum sínum meðan engar voru skráðar reglur og hvernig það hefur verið varðveitt, að margir halda óbreytt í heila öld, eftir að reglur voru skráðar.

Leitast verður við að sýna mun sem er á því sem við teljum að sé gott mál skv. rithefðinni og því máli sem fólk talar, vegna þess að eitt sé mál og annað ritmál. Velt verður upp spurningum um það hvort og þá hvenær eigi eða megi líta svo á að málið hafi breyst - eða hvort koma eigi í veg fyrir breytingar, eins og sumir málverndarsinnar vilja. Grunnurinn í þessu öllu er þrátt fyrir allt málið sem fólk talar og það breytist talsvert á löngum tíma, hvað sem reglur og boð segja.

 



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf