fimmtudagur 13.október 2011 - Pétur Björgvin - Lestrar 9
AKUREYRARAKADEMÍAN KYNNIR:
Í tilefni af degi hússins, fimmtudaginn 13. október kl. 17:00
Arna Valsdóttir vinnur innsetningarverk úr hljóðteikningu sinni ,,Obbolítill óður til kjötbollunnar" sem hún vann árið 2005 fyrir RÚV og Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir teikningar sem hún vann undir áhrifum húsmæðraskólans.
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis.
Verk Örnu er hljóðinnsetning í kennslueldhúsi Húsmæðraskólans byggð á hljóðteikningu eða Hljóðportretti sem hún vann er hún steikti kjötbollur fyrir syni sína árið 2005 en á þeim tíma vann hún hljóðteikningar fyrir RÚV. Verk Pálínu eru teikningar af formæðrum sínum en þær vinnur hún út frá ættfræði en Guðrún Pálína bjó sem barn í Húsmæðraskólanum þar sem móðir hennar Sigrún Höskuldsdóttir var kennari. Guðrún Pálína hefur til fjölda ára unnið verk sem samþætta áhuga hennar á myndlist, ritlist og stjörnuspeki og hefur unnið portrett af einstaklingum sem hún byggir á stjörnukorti þeirra og einnig verk sem hún byggir á ættartölum. Þær Arna og Pálína báðar luku báðar myndlistarnanámi frá Jan van Eyck academie í Maastricht í Hollandi árið 1989.
Í tilefni af degi hússins, fimmtudaginn 13. október kl. 17:00
,,Obbolítill óður til kjötbollunnar"
Staður: Gamla kennslueldhúsið í HúsmæðraskólanumArna Valsdóttir vinnur innsetningarverk úr hljóðteikningu sinni ,,Obbolítill óður til kjötbollunnar" sem hún vann árið 2005 fyrir RÚV og Guðrún Pálína Guðmundsdóttir sýnir teikningar sem hún vann undir áhrifum húsmæðraskólans.
Allir velkomnir - aðgangur ókeypis.
Húsmæðraskólinn á Akureyri við Þórunnarstræti 99 var formlega tekinn í notkun 13. október 1945. Frá árinu 2006 hefur AkureyrarAkademían haft aðstöðu í húsinu.