English

AkureyrarAkademían

Staða kynjanna í kreppunni - samtal um jafnréttismál Fimmtudaginn 8. október næstkomandi kl. 17:00 heldur Tryggvi Hallgrímsson,

Staða kynjanna í kreppunni - samtal um jafnréttismál

tryggvi_120Fimmtudaginn 8. október næstkomandi kl. 17:00 heldur Tryggvi Hallgrímsson, félagsfræðingur, erindi í AkureyrarAkademíunni (gamla Húsmæðraskólanum). Erindið sem nefnist ,,Staða kynjanna í kreppunni - samtal um jafnréttismál" er hluti af fyrirlestrarröð akademíunnar 2009 til 2010. Að erindi loknu er boðið upp á samtal yfir kaffibolla. Allir eru velkomnir og þátttaka ókeypis.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fyrrum félags- og tryggingamálaráðherra skipaði, í ársbyrjun 2009, vinnuhóp um áhrif efnahagsbreytinga á stöðu kynjanna. Vinnuhópurinn skilaði áfangaskýrslu í lok mars þar sem tilgreindir eru málaflokkar og svið sem sérstaklega þarf að gaumgæfa.

Í erindi sínu mun Tryggvi Hallgrímsson, félagsfræðingur, gera grein fyrir niðurstöðum vinnuhópsins og kynna aðferðafræði kynjasamþættingar með áherslu á afleiðingar kreppunnar.

Kynjasamþætting er skilgreind í orðskýringum jafnréttislaga sem leið til „[a]ð skipuleggja, bæta, þróa og leggja mat á stefnumótunarferli þannig að sjónarhorn kynjajafnréttis sé á öllum sviðum fléttað inn í stefnumótun og ákvarðanir þeirra sem alla jafna taka þátt í stefnumótun í samfélaginu.“



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf