English

AkureyrarAkademían

Staða og framtíðarhorfur Listagilsins Vegna sameiningar Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Grófargili verður efnt til málþings um

Staða og framtíðarhorfur Listagilsins

Vegna sameiningar Listasafnsins á Akureyri og Menningarmiðstöðvarinnar í Grófargili verður efnt til málþings um stöðu og framtíðarhorfur í  Listagilinu. Málþingið fer fram í Ketilhúsi laugardaginn 19. nóvember og hefst kl. 12.
Reykvíski myndistarmaðurinn og heimspekingurinn dr. Hlynur Helgason mun í byrjun fjalla um hvernig sýningarhald Listasafnsins kemur honum 
fyrir sjónir, sérstöðu þess og áhrif í víðara samhengi safnaflórunnar og velta fyrir sér hvernig málin gætu þróast með tilkomu Sjónlistamiðstöðvarinnar. Að því loknu hefjast almennar umræður. Ekki  verður um nein önnur framsöguerindi að ræða heldur boðið upp í hringborðsumræður til að hvetja sem flesta að láta í sér heyra.

Sjá nánari upplýsingar í meðfylgjandi Word-skjali.




Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf