English

AkureyrarAkademían

Sýning Örnu og Guðrúnar opin frá 16:00 til 18:00 um helgina Sýning listakvennanna Örnu Valsdóttur og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur í gamla

Sýning Örnu og Guðrúnar opin frá 16:00 til 18:00 um helgina

Sýning listakvennanna Örnu Valsdóttur og Guðrúnar Pálínu Guðmundsdóttur í gamla kennslueldhúsinu á miðhæðinni í Húsmæðraskólanum verður opin föstudag, laugardag og sunnudag frá 16:00 til 18:00. Þar er hægt að upplifa hljóðteikningu Örnu ,,Obbolítill óður til kjötbollunnar" sem hún vann árið 2005 fyrir RÚV í umhverfi sem Arna hefur skapað í eldhúsinu með innsetningu sinni og skoða teikningar Guðrúnar sem hún vann undir áhrifum húsmæðraskólans.

Tengt efni:

  • Skoða myndir frá innsetningunni á degi hússins 13. október 2011 á vef AkureyrarAkademíunnar.
  • Skoða myndir úr eldhúsinu sem teknar voru áður en undirbúningur innsetningarinnar hófst á Flickr vef Péturs Björgvins.



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf