English

AkureyrarAkademían

Vanadísarsaga, völvu og valkyrju - helgar ímyndir úr minni íslenskrar konu Fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar hefst fimmtudaginn 24.

Vanadísarsaga, völvu og valkyrju - helgar ímyndir úr minni íslenskrar konu

valgerdurotsmall_120Fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar hefst fimmtudaginn 24. september kl. 17:00 með erindi Valgerðar H. Bjarnadóttur sem nefnist: Vanadísarsaga, völvu og valkyrju - helgar ímyndir úr minni íslenskrar konu.

 

Sögurnar og goðsagnirnar sem við erfðum og köllum okkar, eru skráðar minningar einstaklinga úr ýmsum samfélögum sem byggðu Ísland frá 9. öld. Flestar eru skráðar af kristnum körlum einhverjum öldum eftir að sögurnar urðu til og þau sem hafa túlkað þær á síðustu öldum, gera það flest út frá karllægum, kristnum, bókmenntalegum, vestrænum, línulegum og rökrænum viðhorfum. Í MA-ritgerð sinni setti Valgerður fram nýja túlkun á sögunum og goðsögnunum og rennur Völuspá eins og rauður þráður í gegnum verkið. Gyðjan og konan eru í forgrunni. Hún tekur söguna allt aftur til tímans fyrir stríð þegar jafnvægi ríkti milli hinnar villtu náttúru og manngerðs samfélags, milli kvenna og karla og ólíkra heima.

Í erindinu gerir hún grein fyrir nokkrum þáttum úr ritgerðinni, m.a. sögunni úr Völuspá um Gullveigu, sem þrisvar var brennd og þrisvar borin - og lifir enn.

Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð AkureyrarAkademíunnar 2009-2010 og hefst kl. 17:00 í sal á efri hæð í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99. Allir velkomnir, aðgangur ókeypis. Kaffi og spjall að erindi loknu.

Nánar má fræðast um starf Valgerðar og ritsmíðar hennar á vefnum:  http://vanadis.is/



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf