English

AkureyrarAkademían

Vel heppnuð dagskrá á Akureyrarvöku 2010 Á Akureyrarvöku 2010 stóð AkureyrarAkademían fyrir kynningu á starfsemi félagsins. Um 120 einstaklingar sóttu

Vel heppnuð dagskrá á Akureyrarvöku 2010

Lára Sóley og HjaltiÁ Akureyrarvöku 2010 stóð AkureyrarAkademían fyrir kynningu á starfsemi félagsins. Um 120 einstaklingar sóttu viðburðinn þar sem þau Lára Sóley Jóhannsdóttir og Hjalti Jónsson fóru á kostum. Í upphafi samverunnar var dagskrá Kvennafrídagsins kynnt og gert stuttlega grein fyrir starfi AkureyrarAkademíunnar. Þá fluttu Lára og Hjalti nokkur íslensk og írsk lög. Að því loknu var gestum boðið upp á léttan morgunverð. Þegar allir höfðu gætt sér af krásunum sem í boði voru tóku Lára og Hjalti aftur fram hljóðfærin.

Skoða má myndir frá samverunni hér á vefnum


Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf