Í tilefni af nýútkominni bók sinni Samtal við framandi... Af hugmyndum tvítugra Íslendinga um fjöltrúarlegar aðstæður mun Pétur Björgvin Þorsteinsson flytja erindi í gamla Húsmæðraskólanum á fimmtudag, 30. apríl, kl. 17:00. Að erindinu loknu verður boðið upp á umræður yfir léttum veitingum.
Pétur Björgvin er með embættispróf djákna í trúarlífsuppeldisfræði frá Karslhöhe í Ludwigsburg, í Þýskalandi og MA gráðu í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst, og er bókin unnin upp úr MA ritgerð hans.
Í bókinni fjallar Pétur um rannsókn sína meðal tvítugra Íslendinga og setur hana m.a. í samhengi við rannsóknir dr. Heinz Streib, prófessors í samkirkjulegri guðfræði við Háskólann í Bielefeld í Þýskalandi. Fjöltrúarlegt umhverfi og þær áskoranir sem í því felast hafa lítið verið rannsakaðar hér á landi þótt töluverð áhersla hafi verið á þessi mál í Evrópsku samhengi á undanförnum árum. Bók Péturs er því kærkomið og þarft innlegg í umræðuna um fjölmenningarlegt og fjöltrúarlegt samfélag, í íslensku sem og í víðara samhengi.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Stjórnin


