fimmtudagur 04.júní 2009 - Stjórn Akureyrarakademíunnar - Lestrar 198
Á mánudaginn þann 8. júní verður Vorhreingerningardagur Akademíunnar, en þá er ætlunin að taka til hendinni á lóð gamla Húsmæðraskólans við Þórunnarstræti.
Gert er ráð fyrir að hefjast handa kl. 15:00, en öllum er frjálst að koma og fara eins og þeim hentar best. Við verðum með grill á staðnum og gerum ráð fyrir því að grilla eitthvað gott ofan í mannskapinn um kl. 18.
Gaman væri að sjá sem flesta - allir velkomnir, ungir sem aldnir!
Stjórnin


