English

AkureyrarAkademían

Vorþing Akademíunnar AkureyrarAkademían stendur fyrir málþingi laugardaginn 2. maí þar sem fjallað verður um

Vorþing Akademíunnar

AkureyrarAkademían stendur fyrir málþingi laugardaginn 2. maí þar sem fjallað verður um málbreytingar og gildi íslenskrar tungu. Málþingið ber yfirskriftina Breytingar til bölvunar? Um íslenskt mál á 21. öldinni. 

Erindi flytja Kristján Árnason prófessor við HÍ, Finnur Friðriksson lektor við HA, Þórhallur Eyþórsson sérfræðingur við Málvísindastofnun HÍ og Einar Már Guðmundsson rithöfundur.  Umfjöllunarefni erindanna eru allt frá samhenginu í íslensku tungumáli til baráttunnar um tungumálið nú á dögum, með viðkomu í þeim breytingum sem eiga sér stað í háhraðanútímasamfélagi. 

Málþingið er öllum opið og stendur yfir frá kl. 13 til 17. 30. Dagskrá þingsins er að finna í ítarefni þessarar fréttar.

 

Verið velkomin,

Stjórnin 

 

Breytingar til bölvunar?Um íslenskt mál á 21. öldinni

- Vorþing AkureyrarAkademíunnar -

13.00 Setning þingsins

13.10 Kristján Árnason prófessor við HÍ: Til hvers að teygja lopann? Um samhengið í íslenskri málþróun

13.40 Finnur Friðriksson lektor við HA: Málbreytingar: viðhorf málnotenda

14.30 Hlé

15.10 Þórhallur Eyþórsson sérfræðingur hjá Málvísindastofnun HÍ: Óbærilegur breytileiki málsins? Um tilbrigði í íslenskri setningagerð

15.40 Einar Már Guðmundsson rithöfundur: Baráttan um tungumálið

16.30 Pallborðsumræður um málbreytingar og gildi íslenskrar tungu

17.30 Þinginu slitið



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf