English

AkureyrarAkademían

Vorþing Akademíunnar -Rannsóknir í upphafi nýrrar aldar-  Á laugardaginn, þann 27. mars heldur Akademían vorþing sitt, sem að þessu sinni verður

Vorþing Akademíunnar

-Rannsóknir í upphafi nýrrar aldar- 

Á laugardaginn, þann 27. mars heldur Akademían vorþing sitt, sem að þessu sinni verður helgað rannsóknum og rannsóknastarfi á Norðurlandi. Akademían hlaut styrk frá Menningarráði Eyþings til viðburðarins en þingið er haldið í samstarfi við Þekkingarsetur Þingeyinga og Rannsókna- og þróunarstofnun Háskólans á Akureyri, auk þess sem Akureyrarstofa og Háskólinn á Akureyri koma að því.

Þingið verður haldið í gamla Húsmæðraskólanum og hefst kl. 13:00. Eins og aðrir viðburðir Akademíunnar er þingið opið öllum og aðgangur ókeypis. 

Dagskrá þingsins má lesa hér fyrir neðan. 

logoey_640 

Þingið er styrkt af Menningarráði Eyþings

Laugardaginn 27. mars kl. 13:00 verður Vorþing AkureyrarAkademíunnar haldið í gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99. Þingið ber yfirskriftina:

 -Rannsóknir í upphafi nýrrar aldar-
Um rannsóknir á Norðurlandi, mikilvægi þeirra og framtíð

Fundarstjóri: ÞórgnýrDýrfjörð

13:00   Þóra Pétursdóttir, formaður stjórnarAkureyrarAkademíunnar
Inngangur aðRUNA verkefninu

13:15   Margrét Guðmundsdóttir, sagnfræðingur ogstarfsmaður RUNA verkefnisins
Rannsóknir íupphafi nýrrar aldar – kynning á niðurstöðum samantektar

13:50   Stefán B. Sigurðsson, rektor Háskólans áAkureyri
Mikilvægirannsókna á tímum niðurskurðar

14:20   Kaffihlé

14:40   Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur hjáRannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri
Akureyri og Eyjafjarðarsvæðið á tímumatvinnuháttabreytinga

15:15   Óli Halldórsson, forstöðumaðurÞekkingarseturs Þingeyinga á Húsavík
Rannsóknastarfí Þingeyjarsýslum – Vettvangsvinna fyrir gesti eða atvinnuvegur í heimahéraði?

15:45   Umræður

16:00   Hlé -veitingar

16:20   Vinnufundur
Opinn vinnufundurum möguleikann á þróun sameiginlegs rannsóknagrunns fyrir Norðurland

17:00   Þingslit

Aðgangur ókeypis – Allir velkomnir



Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf