English

AkureyrarAkademían

 Fræðasetur á Norðurlandi AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur

Kynning

 

Fræðasetur á Norðurlandi

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Félagar AkureyrarAkademíunnar eru bæði bakhjarlar sem og virkir þátttakendur í starfsemi félagsins. Hægt er að leigja sér starfsaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99, Akureyri.

Fyrirmyndin að AkureyrarAkademíunni er sótt til ReykjavíkurAkademíunnar, en sú síðarnefnda hefur verið starfrækt í höfuðborginni í rúman áratug með góðum árangri. Markmiðið með stofnun AkureyrarAkademíunnar var að nýta betur þekkingu fræðafólks á Norðurlandi, skapa þeim vettvang til miðlunar og umræðu inn á við sem og til samfélagsins. Þá knúði á þörf þessa hóps fyrir starfsaðstöðu til rannsókna, og þörf samfélagsins fyrir setur fræða, þangað sem stofnanir og fyrirtæki geta einnig leitað eftir sérþekkingu á ákveðnum sviðum. Félagar stunda rannsóknir og grúsk á víðu vísindasviði. AkureyrarAkademían er í samvinnu við aðrar stofnanir og fræðasetur í landinu, s.s. ReykavíkurAkademíuna og háskólana, auk ýmissa félagasamtaka á Norðurlandi, s.s. Sagnfræðingafélagið, Heimspekifélagið o.fl.

AkureyrarAkademían hefur fengið afnot af hæð í gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti á Akureyri og þar fer öll starfsemi hennar fram. Þar eru haldnir fundir, fyrirlestrar, sýningar og málþing og þar getur fræðifólk leigt sér vinnuaðstöðu og notið samvista og faglegs samstarfs við fólk úr ólíkum fræðigreinum. Skrifborð og nettenging er til staðar, auk matar- og kaffiaðstöðu og möguleika til fundahalda. Lögð er áhersla á góðan vinnuanda, næði til rannsókna og að unnið sé að sameiginlegum verkefnum með fólki úr ýmsum áttum.

Sameiginleg starfsemi AkureyrarAkademíunnar er styrkt af menntamálaráðuneyti, Akureyrarbæ, KEA og fleiri aðilum, en einstaklingarnir sem þar hafa vinnuaðstöðu standa undir þeim kostnaði sem fellur til vegna hennar.

Merki (lógó) AkureyrarAkademíunnar hannaði Margrét Ingibjörg Lindquist (f. 1974), nemi í grafískri hönnun.

Ljósmynd af gamla húsmæðraskólanum, sem birt er efst á þessari síðu, tók Hugi Hlynsson (f. 1991), ungur myndasmiður á Akureyri.

Um okkur

AkureyrarAkademían er samfélag fólks á Norðurlandi sem lokið hefur háskólaprófi og/eða sinnir fræði- eða ritstörfum. AkureyrarAkademían er daglegt heiti Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi, sem stofnað var vorið 2006. AkureyrarAkademían stendur reglulega fyrir fundum, fyrirlestrum, málþingum og uppákomum, þar sem félagar og gestir miðla af þekkingu sinni og sköpunargleði. Hægt er að leigja sér vinnuaðstöðu í húsnæði AkureyrarAkademíunnar, gamla Húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri.

Mynd augnabliksins

Á næstunni

Engir viðburðir á næstunni

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf