Lög Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi
Heiti og tilgangur
1. gr.
Félagið heitir Félag sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi. Heimili þess og varnarþing er á Akureyri.
2. gr.
Tilgangur félagsins er að vera aflvaki fræðilegra rannsókna og miðlunar þeirra, með sérstakri áherslu á þverfaglegar rannsóknir og alþjóðlegt samstarf. Félagið stendur fyrir virku samstarfi sjálfstætt starfandi fræðimanna og er vettvangur umræðu um samfélag og menningu.
Félagar og aðild lögpersóna
3. gr.
Félagar geta þeir fræðimenn orðið sem lokið hafa háskólaprófi og/eða sinna fræði- eða ritstörfum.
4. gr.
Aðild að félaginu geta einnig átt stofnanir, fyrirtæki og félög, svo fremi að tilgangur þeirra og starfsemi samræmist lögum þessum.
Aðalfundur
5. gr.
Aðalfundur skalhaldinn fyrir lok maí ár hvert, en reikningsár félagsins er almanaksárið. Til aðalfundar skal boðað skriflega meðal félagsmanna, með pósti eða rafpósti, ogmeð opinberri auglýsingu í fjölmiðli með minnst viku fyrirvara.
Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:
(1) Kosning embættismanna fundarins.
(2) Skýrsla stjórnar.
(3) Reikningar félagsins.
(4) Lagabreytingar. Tillögur að lagabreytingum skulu liggja frammi minnst viku fyrir aðalfund og kynntar félagsmönnum.
(5) Kjör formanns til eins árs.
(6) Kjör eins stjórnarmanns til tveggja ára og tveggja varamanna til eins árs.
(7) Kjör tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs.
(8) Ákvörðun félagsgjalda.
(9) Önnur mál.
Atkvæðisrétt á fundinum hafa félagsmenn sem viðstaddir eru og greitt hafa félagsgjald.
Stjórn
6. gr.
Stjórn skipa þrír aðalmenn og tveir menn til vara. Stjórnin velur ávallt úr sínum hópi ritara og gjaldkera er gegni störfum sínum til næsta aðalfundar. Formaður er kosinn til eins árs í senn, þó ekki oftar en fjögur ár í röð.
7. gr.
Stjórnin sér um fjárreiður félagsins, gerir fjárhagsáætlun í upphafi hvers starfsárs og gerir upp reikningsárið. Hún sér einnig til þess að haldið sé félagatal. Haldin er gjörðarbók stjórnarfunda og skulu viðstaddir stjórnarmenn staðfesta fundargerð með undirritun sinni.
8. gr.
Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins, hefur umboð félagsmanna til að fara með mál félagsins og fylgja eftir markmiðum þess. Stjórnin er handhafi auðkenna félagsins. Stjórnin skal í störfum sínum taka fullt mið af sjónarmiðum félaga og leita eftir þeim, verði því við komið, t.d. með almennum fundum, tilkynningum og umræðu á veraldarvefnum eða með öðrum hætti. Stjórnin skal halda a.m.k. tvo almenna félagsfundi á hverju starfsári.
Almennur félagsfundur
9. gr.
Fari minnst fimmtungur félagsmanna fram á sérstakan félagsfund skal stjórn verða við því og boða til fundar með rafpósti með minnst þriggja daga fyrirvara. Atkvæðisrétt á félagsfundi hafa félagar sem viðstaddir eru og greitt hafa félagsgjald. Ályktun almenns félagsfundar er bindandi fyrir stjórn greiði þrír fjórðu hluta fundarmanna henni atkvæði.
Breyting á lögum
10. gr.
Lögum þessum er aðeins heimilt að breyta á aðalfundi, enda séu lagabreytingar auglýstar í fundarboði. Til lagabreytinga þarf tvo þriðju hluta gildra atkvæða.
Slit Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi
11. gr.
Félagi sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi verður aðeins slitið greiði tveir þriðju hlutar því atkvæði á tveimur löglega boðuðum aðalfundum með eins mánaðar millibili. Komi til slita félagsins skulu eignir þess renna í þann sjóð tilstyrktar rannsóknum sem aðalfundur telur best sæma tilgangi félagsins.
Ákvæði til bráðabirgða
Á stofnfundi Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi skal kjósa einn stjórnarmann til eins árs og annan til tveggja ára. Þar eftir skal kjósa einn stjórnarmann á aðalfundi til tveggja ára.
Samþykkt á framhaldsstofnfundi Félags sjálfstætt starfandi fræðimanna á Norðurlandi 30. maí 2006


