AkureyrarAkademían er til húsa í gamla Húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti 99 á Akureyri og í björtum salarkynnum þessa reisulega húss fer öll starfsemi félagsins fram. Þar eru haldnir fundir, fyrirlestrar, sýningar og málþing og þar getur fræðifólk leigt sér vinnuaðstöðu og notið samvista og faglegs samstarfs við fólk úr ólíkum fræðigreinum. Skrifborð og nettenging er til staðar, auk matar- og kaffiaðstöðu og möguleika til fundahalda. Lögð er áhersla á góðan vinnuanda, næði til rannsókna og að unnið sé að sameiginlegum verkefnum með fólki úr ýmsum greinum. Veturinn 2007-2008 eru rúmlega tíu manns með vinnuaðstöðu í AkureyrarAkademíunni, auk þess sem starfsmaður Fornleifaverndar ríkisins hefur aðsetur í Húsmæðraskólanum.
AkureyrarAkademían er lifandi samfélag sjálfstætt starfandi fræðimanna og þau sem hafa aðstöðu í húsnæðinu taka virkan þátt í þessu samfélagi, uppbyggingu þess og þróun sem og daglegum rekstri húsnæðisins. Enginn fastur starfsmaður hefur verið ráðinn og því deila félagar ábyrgðinni á hinum ýmsu störfum sem þarf að sinna. Þó er fastur starfsmaður í þrifum.
Leiga í almennu rými (4-6 skrifborð í sal) kostar kr. 12.000 á mánuði fyrir langtímaleigu (meira enn tvo mánuði í senn), skammtímaleiga er: 1 vika á kr. 5.000, 2 vikur á kr. 8.000, 3 vikur á kr. 12.000 og kr. 15.000 fyrir einn stakan mánuð.
Mánaðarleiga í lengri tíma á herbergi í kjallara eru kr. 30.000 fyrir stærra herbergið og kr. 18.000 fyrir það minna. Á fyrstu hæð er herbergi sem leigt er á kr. 20.000.
Leigjendur hafa aðgang að stórum og björtum sal á annarri hæð fyrir fundi, fyrirlestra eða aðrar uppákomur, fyrir utan þá aðstöðu sem þegar hefur verið greint frá. Auk þess geta almennir félagar leigt salinn sérstaklega.
AkureyrarAkademían og ReykjavíkurAkademían hafa gert með sér samkomulag um að þau sem leigja sér langtímaaðstöðu á hvorum stað fyrir sig geta fengið aðgang að vinnu- og fundaraðstöðu tímabundið í hinni Akademíunni.
Ef þú hefur áhuga á að leigja þér vinnuaðstöðu í AkureyrarAkademíunni til lengri eða skemmri tíma þá geturðu haft samband við Margréti í síma Akademíunnar sem er 4614006 eða sent tölvupóst á stjorn@akureyrarakademian.is


